Um Hagblikk

Hagblikk opnaði 1996 á Smiðjuvegi 4c í Kópavogi.

Hagblikk sérhæfir sig í sölu á hverskonar efni og tækjum til loftræstikerfa og húsbygginga.

Hagblikk sérhæfir sig í smíði á spíralrörum, innflutningi og sölu á fittings tengdum loftræstikerfum sem og blásurum, brunalokum og fleiru. Einnig höfum við góðann lager af "centrifugal" blásurum , rörablásurum, þakblásurum, hljóðeinangruðum blásurum, loftristum, loftbörkum, samsetningarvinklum, spónarlokur, þakrennur ofl.

Við leggjum mikla áherslu á góða þjónustu. Helstu viðskiptavinir eru blikksmiðir og húsbyggendur.

Hagblikk hefur yfir að ráða vél sem framleiðir loftrör (spírórör) sem notuð eru sem loftstokkar, steypumót ofl.

Við höfum frá upphafi flutt inn ál þakrennur og niðurföll frá norska framleiðandanum Grovik Verk.

Hagblikk er hluti af Fagkaup ehf, kennitala 670169-5459, VSK nr. 11784